Fréttamenn ríkisútvarpsins sviðnir

Nýr stjórnarmaður í Rúv ohf, Lára Hanna Einarsdóttir, sem situr í stjórn Ríkisútvarpsins fyrir hönd Pírata, vill að þáttur sambærilegur Silfri Egils verði aftur settur á dagskrá hjá stofnuninni. Þá segir hún að fréttamönnum Rúv hljóti að svíða að þurfa sífellt að vísa í aðra miðla þegar valdamiklir menn taki einkamiðla fram yfir almannaútvarpið þegar þeir finna stórum yfirlýsingum tíðindi eins og Davíð Oddsson kaus að gera á Bylgjunni í morgun:

Fréttamenn Ríkissjónvarpsins hljóta að reyta hár sitt þessi misserin yfir að hafa engin tök á að skúbba fréttum eða fjalla um þær á djúpan, málefnalegan hátt um helgar og í sérstökum umræðuþáttum. Auk þess sem þeir þurfa að vísa í viðtöl Stöðvar 2 og fréttir sem þar koma fram,\" skrifar Lára Hanna stjórnarmaður Rúv á facebook. Hún heldur áfram:

\"Annars vegar vegna þess að ráðamönnum líðst að hunsa RÚV, neita viðtölum við þá og hins vegar vegna óskiljanlegrar tregðu Ríkissjónvarpsins að vera með umræðuþátt í anda Silfursins og/eða sérstaka fréttaskýringaþætti t.d. vikulega.\"

Lára Hanna bendir á að Kastljós geri sitt besta, en tíminn sem fréttaskýringar fái þar sé takmarkaður, enda um blandaðan magasínþátt að ræða.

\"Meira þarf til. Miklu meira,\" segir Lára Hanna.
.