Fréttamaður BBC í Moskvu, Farida Rustamova, hefur ásakað rússneskan þingmann, Leonid Slutsky, um kynferðislegt áreiti. Slutsky er formaður utanríkismálanefndar rússneska þingsins. Rustamova er þriðja konan sem ásakar þingmanninn opinberlega um ósæmilegt framferði, að því er segir í frétt BBC.
Forseti rússneska þingsins, Vyacheslav Volodin, neitar ásökununum og hefur hótað því að lögsækja konurnar fyrir ófrægingu. „Eigum við ekki að láta pólitíkusana um pólitíkina. Við skoðum þetta, en það eru alltaf tvær hliðar á hverju máli,“ segir hann í BBC fréttinni. Hann hvetur konurnar til að leggja fram formlega kvörtun til siðanefndar þingsins en sagði líka að fréttakonur sem óttuðust fréttastörf í þinginu ættu að vinna annars staðar.
Rustamova segir atvikið hafa átt sér stað í mars í fyrra þegar hún heimsótti þingmanninn á skrifstofu hans til að ræða heimsókn Marine Le Pen til Rússlands. Þar hafi hann meðal annars strokið henni um bakhlutann og talað um að hún kæmi til vinnu fyrir hann og yrði ástkona hans. BBC segist hafa undir höndum hljóðupptöku af þessum samskiptum, en ætli ekki að birta hana.
Kynferðislegur yfirgangur hefur ekki komið til opinberrar umræðu í Rússlandi á sama hátt og á Vesturlöndum undanfarna mánuði.