Fréttablaðið: engin afsökunarbeiðni

Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins segir að blaðið standi við frétt sína frá því í gær um íbúðina í Hlíðunum sem hafi verið útbúin til nauðgana, en óhætt er að segja að sú frétt hafi vakið mikið umtal og deilur síðasta sólarhring.

Samfélagsmiðlar loguðu eftir að fréttin birtist í gærdag, en þar var þess víða krafist - og ekki alltaf með penu orðalagi - að meintir gerendur í því alvarlega kynferðisbrotamáli sem fréttin greindi frá, yrðu settir tafarlaust í gæsluvarðhald - og ofbauð mörgum að mennirnir fengju að ganga lausir á meðan fólk væri hneppt í varðhald fyrir minni sakir.

Fanney Birna, sem verður gestur í Ritstjórunum hjá Sigmundi Erni á Hringbraut í kvöld segir að efnisatriði fréttarinnar hafi ekki verið hrakin og því muni ritstjórn blaðsins ekki senda frá sér afsökunarbeiðni vegna hennar eins og lögmaður tvímenninganna, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hefur krafist í dag, en hann telur miska sinna skjólstæðinga mikinn vegna hatrammrar umræðu á samfélagsmiðlum í kjölfar fréttar Fréttablaðsins og krefst hann 10 milljóna króna í miskabætur af hálfu blaðsins fyrir báða hlutaðeigandi.

Þá hefur Vilhjálmur einnig nefnt að þeim þúsundum sem sett hafi fram ærumeiðandi ummæli um skjólstæðinga sína á samfélagsmiðlum síðasta sólarhringinn verði einnig stefnt fyrir meiðyrði. 

Ritstjórarnir eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 í kvöld.