Björgunarsveitir Suðurlands og Reykjavíkur leituðu árangurslaust að Rimu Grunskyté Feliksasdóttur síðustu daga en ákváðu í gær að fresta áframhaldandi leit fram á fimmtudag.
Lögregla hóf leitina á Þorláksmessu og voru björgunarsveitir að fram á kvöld í gærkvöldi. Ekkert hefur spurst til Rimu rá því síðastliðið föstudagskvöld. Ákveðið var að leita áfram í dag en talið er að hún hafi fallið í sjóinn við Dyrhólaey síðastliðinn föstudag.
Í gær var leitað var með fram strandlengjunni frá Þorlákshöfn að Skaftárósum. Einnig var leitað við Dyrhólaey, fótgangandi og með drónum. Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði björgunarsveitarfólk einnig við leitina.
Lögreglan óskar eftir því að hver sá sem hafi einhverjar upplýsingar um ferðir Rimu frá því síðastliðinn föstudag klukkan 19:00 setji sig í samband við lögreglu, annað hvort á netfangið sudurland@logreglan.is eða í einkaskilaboðum á Facebook.