Samtök ferðaþjónustunnar hafa ákveðið að fresta Ferðaþjónustudeginum 2019 til hausts. Er ástæðan sögð staðan á vinnumarkaði.
Þetta kemur fram á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar en fundurinn átti að fara fram 21.mars í Hörpu. Nánari dagskrá verður auglýst er nær dregur.
Verkfallsaðgerðir VR voru samþykktar í gær með mjög naumum meirihluta. Af þeim 578 einstaklingum sem greiddu atkvæði vildu 302 eða 52,3 prósent fara í verkfallsaðgerðir. Í fyrstu atrennu munu aðgerðirnar leggjast á ferðaþjónustu- og rútufyrirtæki.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/fresta-ferajonustudeginum-vegna-stoeunnar