Fremur róleg og slysalaus áramót

Landsmenn fögnuðu nýju ári með friði og spekt og eru varla sögð tíðindi af slagsmálum eða grófum drykkjulátum þrátt fyrir gleðina alla sem sækir Íslendinga heim á áramótum. Nokkur slys urðu af völdum flugelda, en engin alvarleg.

Þetta virðist vera samdóma álit lögreeglumanna hringinn í kringum landið. Friðurinn þýddi þó ekki það að minna væri sprengt en fyrri árin, þvert á móti var himininn yfir landinu marglitur í meira lagi, en einna síst sást til fegurðarinnar á suðvestanverðu landinu þar sem gerði byl á tólfta tímanum.

Úrkomubakkinn sem spáð hafði verið að kæmi yfir höfuðborgarsvæðið á miðnætti gekk þannig eftir, fólki til misjafnrar skemmtunar.

Færð spilltist nokkuð fyrir vikið í efri byggðum og bar talsvert á því að fólk yfirgæfi bíla á Hellisheiði sem ratað höfðu í vandræði sakir óveðurs.