Veturinn fer senn að kveðja og kortin bera það með sér því fremur hlýtt verður næstu daga, jafnvel upp undir fimmtán stiga hita fyrir norðan og austan, en hlýindunum fylgja aftur á móti miklir vindar og rigning, einkum suðaustanlands.
Annars er umsögn veðurfræðings Veðurstofu Íslands á þessa leið: \"Suðaustan 5-13 m/s víða um landið austanvert en 10-18 m/s vestantil, hvassast á annesjum. Skýjað og sums staðar skúrir um landið sunnan og vestanvert en skýjað með köflum eða léttskýjað annars staðar. Samfelldari rigning á vestanverðu landinu í nótt og á morgun. Hlýnandi og hiti 2 til 9 stig að deginum, en næturfrost í innsveitum norðaustantil.\"
Og hjá Vegagerðinni eru upplýsingarnar meira og minna á einn veg: \"Það er greiðfært á öllum leiðum á Suður- og Vesturlandi. Á Vestfjörðum er sums staðar hálkublettir á fjallvegum en annars greiðfært. Þæfingur og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði en snjóþekja er upp úr Trostansfirði.
Um norðanvert landið eru vegir greiðfærir. Á Austurlandi eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti og hálka er á Fagradal og Vatnsskarði eystra og snjóþekja á Breiðdalsheiði og Öxi. Greiðfært er með suðausturströndinni.\"
Það er sumsé að koma sumar, alltént vor.