Konur Framsóknar í ríkisstjórn eru niðurlægðar af frekum köllum í Sjálfstæðisflokknm og aðrir þingmenn Framsóknarflokksins sitja þegjandi hjá. Enginn þeirra kemur flokkssystrum sínum til varnar á meðan híað er á þær og gert að þeim gys.
Þetta segir Össur Skarphéðissoin um núninginn milli stjórnarflokkanna þessa dagana þar sem þingkarlar íhladsins lítilsvirði kvenráðherrana Framsóknar: „Freki kallinn“ í Sjálfstæðisflokknum bara ræður, segir Össur og telur að enginn þori að hreyfa mótmælum eða að koma kvenráðherrum Framsóknarflokksins til varnar þegar þær verða fyrir árásum Sjálfstæðismanna. Ekki sé tekið mark á þeim.
Össur er í stuði í færslu sinni: "Bjarni Benediktsson segir hvað eftir annað opinberlega að Eygló hafi dregið til baka húsnæðisfrumvörpin. Þegar Eygló ber á móti því gerir Bjarni bara gys að henni í fjölmiðlum og lætur hætta vinnu við að kostnaðarmeta frumvörpin." Og hann heldur áfram: "
Sigrún Magnúsdóttir, sem fer með málefni auðlinda og umhverfis, missti út úr sér í upphafi umræðunnar um Rammaáætlun að hún vildi helst bara sjá þá einu virkjun, sem verkefnisstjórnin hafði afgreitt. Hún er niðurlægð með því að „freki kallinn“ í Sjálfstæðisflokknum tekur Alþingi í gíslingu og knýr fram umræðu um tillögu um fjórar aðrar virkjanir sem verkefnisstjórnin segir að sé ólokið og hennar eigið ráðuneyti segir að sé í andstöðu við lögin. Núna þorir Sigrún ekki að gefa upp afstöðu. Hún hefur semsagt sannfæringu, sem stjórnarskráin segir að hún eigi að fara eftir, en „freki kallinn“ leyfir það ekki."
Össuri finnst það í meira lagi undarlegt að á meðan konur Framsóknar í ríkisstjórn séu niðurlægðar af „freka kallinum“ í Sjálfstæðisflokknum komi enginn flokksfélagi þeirra þeim til varnar.
Ö