Freki karlinn er á útleið

Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins sagði í viðtalsþættinum Mannamáli á miðvikudagskvöld að það færi fjarri því að umræða um ólíka stjórnunarhætti kvenna og karla væri klisjukennd; konur hefðu komið með önnur gildi inn í rekstur félaga og fyrirtækja en karlar.

Þar nefndi hún til sögunnar \"þjónandi forystu\" sem hún kvaðst sannfærð um að væri árangursríkari leið í stjórnun en hin gamalkunna aðferð karlasamfélagsins sem hefði einkennst af frekju og yfirgangi: \"Freki karlinn er á útleið,\" minnti hún á og kvaðst ætla að þeirri breytingu fylgdi mikil blessun fyrir félög og fyrirtæki.

Í þættinum, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, sagðist hún leggja mikla áherslu á í sinni vinnu að hlusta á framlag og tillögur samstarfsfólks síns, stjórnandi sem ekki hlustaði á sitt fólk gæti ekki ætlast til þess að það hlustaði á hann.

Hún sagði að það sem einkenndi vinnuna innan Borgarleikhússins væri öðru fremur samvinna og virðing fyrir ólíkum skoðunum fólks, en ljóst ber að þetta vinnulag hefur skilað félaginu miklum árangri; 230 þúsund gestir heimsóttu þetta stærsta leikhús landsmanna á síðasta ári - og fjöldi fastra korthafa hefur aldrei verið meiri.

Samtal þeirra Kristínar og Sigmundar Ernis var upplýsandi, einlægt og persónulegt, en Kristín talaði opinskátt um æsku sína, en hún er ættleidd og telur að það hafi mótað hana á vissan hátt, en svo kom hún sjálf út úr skápnum 18 ára og minnist þess þakklætis að hafa átt dásamlega fjölskyldu sem hafi alltaf stutt hana í þeim efnum og þá nefnir hún að það hafi ekki síður verið mikil forréttindi að uppgötva kynhneigð sína í jafn opnu og fordómalausu samfélagi og Ísland er hefur verið á síðustu árum.

Mannamál eru endursýnd í dag og verða einnig sýnd um helgina á Hringbraut.