Frasi búinn til í valhöll: sækja peninga til eftirlaunaþega en lækka veiðigjöld – sjáðu bréf bjarna til eldri borgara

„Þetta eru mínir peningar, ríkið á ekkert tilkall til lífeyrissjóðakerfisins.“

Þetta sagði Helgi Pétursson, forsvarsmaður Gráa hersins en samtökin hafa höfðað mál gegn ríkinu vegna skerðinga á bótum úr almannakerfinu sem eiga sér stað eftir að eftirlaunaþegar ná ákveðinni upphæð greiðslna úr lífeyrissjóðum. Helgi gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í Bítinu á Bylgjunni en DV vakti athygli á málinu í morgun.

Helgi og bendir á að það sé stórpólitísk ákvörðun að velja að sækja sér peninga í ríkissjóð með þessum hætti í stað þess að hækka veiðigjöld. Þess má geta að Kristján Þór Júlíusson hefur lækkað veiðigjöld umtalsvert á margar tegundir og er um lækkun upp á milljarða að ræða, líkt og kom fram á Hringbraut í morgun. Helgi sagði á Bylgjunni

„Þessi frasi er búinn til í Valhöll, að hvað séu menn að kvarta sem séu með milljón á mánuði í úr lífeyrissjóði. En þessi hópur er ekki með slíkar greiðslur heldur fyrrverandi alþingismenn og ráðherrar sem hafa komið sér vel fyrir í kerfinu. Langstærsti hópurinn, 45-50 þúsund manns, er með í kringum 300 000 á mánuði.“

Þá vitnaði Helgi í bréf Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra frá árinu 2013. Bréfið sendi Bjarni til eldri borgara og segir Helgi að Bjarni hafi lofað að hætta þessari ósvinnu að sækja í vasa eldri borgara en ekki hafi verið staðið við þau loforð. Hér fyrir neðan má sjá bréf Bjarna til eldri borgara fyrir kosningar.

\"\"