Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðkiptablaðsins, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Þeir ræða um gjaldþrot Primera air, aðdraganda þess og áhrifin á markaðsverð Arion banka. Þeir fara sömuleiðis yfir stöðu flugfélaganna að undanförnu og koma inn á frásagnir og viðbrögð stjórnenda þegar á móti blæs í rekstrinum. Ekki eru nema nokkrar vikur síðan Andri Már Ingólfsson, forstjóri Primera Travel Group, eigandi Primera air, sagði að búið væri að koma félaginu fyrir vind hvað fjármögnun snerti. Þá skrifaði Trausti mjög athyglisverðan leiðara á dögunum í Viðskiptablaðið sem bar yfirskriftina WOW og fjölmiðlarnir. Þar tekur hann fyrir viðbrögð Skúla Mogensen á Facebook vegna fréttar Morgunblaðsins um að WOW skuldaði Isavia um 2 milljarða kr. í lendingargjöld. Hér má sjá tengil inn á leiðara Trausta: http://www.vb.is/skodun/wow-og-fjolmidlar/149852/
Frásagnir stjórnenda þegar á móti blæs
Fleiri fréttir
Nýjast