Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og formaður Þingvallanefndar segir að grípa þurfi til aðgerða varðandi frárennslið frá Nesjavöllum í Þingvallavatn. Hún segir skýrslu sem ráðuneytið lét gera á þessu ári hins vegar sýna að það eigi sér ekki afgerandi hröð óheillaþróun eigi sér stað í Þingvallavatni, líkt og Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum sagði í viðtali á Hringbraut í gær. Gunnar Steinn Jónsson, líffræðingur vann skýrslu um ákomu og afrennsli við Þingvallavatn. Í henni var gert mat á innstreymi niturs af náttúrulegum uppruna og af mannavöldum, m.a. með lindarvatni, loftborinni ákomu, skólpi, landbúnaði og áburðargjöf. Samanburður á innstreymi og tapi næringarefna vegna útstreymis og setmyndunar.
Sigrún benti á að þótt Þingvellir hafi enga peninga fengið úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða að þessu sinni séu Þingvelli á fjárlögum.
Varðandi minnkandi vatnsrennsli í lækjum og ám í Skaftárhreppi segir Sigrún að hreppurinn sjálfur hafi enga burði til að gera neitt í málinu en flækjustigið sé hátt og stofnanir margar sem komið að málinu og innan þeirra sé ekki samhljómur. Grenlækur í Skaftárhreppi er t.a.m. á náttúruminjaskrá og hefur verið afar verðmæt silungsveiðiá. Hún er að miklum hluta þurr núna. Hluti vandans er að Vegagerðin og Landgræðslan hafa undanfarið reist varnargarða sem svo rofnuðu mikið í Skaftárhlaupi í fyrra.