Rannsóknardómari í Frakklandi hefur gefið út ákæru á hendur Björgólfi Guðmundssyni, fyrrverandi aðaleiganda gamla Landsbankans í tengslum við rannsókn á lánum sem Landsbankinn í Lúxemborg veitti fyrir hrun.
Þetta kemur fram á fréttavef RÚV, en þar segir að Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi yfirmaður bankans í Lúxemborg sæti einnig ákæru vegna sömu rannsóknar. Alls eru níu ákærðir í málinu.
Ákæran er 34 síður og byggir á grein í frönskum hegningarlögum sem varðar það að lofa áhættulausum viðskiptum. Eftir því sem fram kemur í frétt RÚV af málinu hefur það verið rekið af einum kunnasta rannsóknardómara Frakka, Renaud van Ruymbeke.
Eftir að rannsókn málsins lauk í september gafst hinum grunuðu færi á að senda andmæli til van Ruymbeke - og höfðu þeir til þess frest í þrjá mánuði. Í framhaldinu átti svo að taka ákvörðun um hvort ákært yrði í málinu eða það fellt niður.
Lögmaður Björgólfs sagði í samtali við fréttastofu RÚV á sínum tíma að hann hefði komið því á framfæri við rannsóknardómarann að Björgólfur hefði ekki haft nein yfirráð yfir Landsbankanum í Lúxemborg.