Bjarni Harðarsson bóksali og bókaútgefandi á Selfossi segir frá ferð sinni til Eþíópíu en þangað fór hann til að fá innblástur við skrif á nýjustu bók sína Í skugga drottins sem fjallar um fátækt fólk á Íslandi á 18.öld Sigmundur hitti Bjarna bóksala.
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn fyrir austan, það er sýningin sem nefnist Frakkar á Íslandsmiðum . Hún er ekki síst vinsæl meðal franskra ferðmanna og sýnir frá veru franskra veiðimanna við strendur Íslands á 16.öld, í nærri fjögur hundruð ár. Um aldamótin 1900 byggðu Frakkar m.a. spítala í kaupstaðnum.
Sýningin er í endurgerð af skútu líkt og fiskimennirnir voru á og nefndust gólettur en einnig er sýningin í anddyri gamla spítalans. Spítalinn var endurbyggður um 2006. Einnig er í bænum varðveitt gamla læknishúsið, kapellan og líkhúsið sem og kirkjugarður fiskimannanna utan við þorpið þar sem vitað er um 49 grafir.
Linda Blöndal ræðir við Fjólu Þorsteinsdóttur leiðsögukonu safnsins.