Þorsteinn Matthías Kristinsson varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi ætlar að vera með fjölskyldunni fyrri hluta verslunarmannahelgarinnar. „Ég skelli mér á Unglingalandsmót á Höfn,“ segir Þorsteinn og segist munu mæta til vinnu seinnihluta helgarinnar.
Þetta er aðeins brot úr umfjöllun Frétablaðsins. Smelltu hér til að lesa meira.
Lögreglan á Suðurlandi er sveigjanlegur vinnustaður og þar er þess gætt að lögreglumenn séu vel hvíldir enda mikið álag á þeim í stóru umdæmi. „Sumarið hefur verið með svipuðum hætti og önnur sumur. Mikil ferðamennska og þar af leiðandi umferð um vegi. Á Suðurlandi eru mjög vinsælar náttúrperlur, sem menn vilja heimsækja. Þessu fylgja mörg verkefni fyrir lögreglu, stór sem smá, allt frá týndum vegabréfum upp í hópslys. Það er von okkar að banaslysum í umferðinni fari að fækka en það er ekki endilega þannig að slysum og líkamstjónum sé að fækka. Nánast daglegt brauð,“ segir Þorsteinn og segir lögregluna á hverjum degi reyna með því að vera sýnileg sjá til þess að allir komist heilir heim eftir ferðalag um Ísland. Því miður sé alltof lítið tilllit tekið til þeirra þegar þeir séu við vinnu á vegum og þeir sé einnig of fáir.
„Því miður er umferðarhegðun með þeim hætti, að ekki veitir af að hafa sem flesta lögreglumenn á vegum úti. Það eitt er krefjandi og talsvert hættulegt fyrir lögreglumenn, þar sem, því miður, allt of lítið tillit er tekið til okkar þegar við erum við vinnu á vegunum. Ef við teljum upp stök verkefni, þá eru hópslys mjög krefjandi fyrir lögreglu og aðra viðbragðsaðila. Þar reynir mjög á góða samvinnu milli viðbragðaðila og að menn haldi skipulagi.
Þetta er aðeins brot úr umfjöllun Frétablaðsins. Smelltu hér til að lesa meira.