Greining á ógnum og tækifærum í framtíð Íslands hefur verið ábótavant. Atvinnulífið þarfnast betri leiðarvísa en gerðir hafa verið til þessa, segja Ævar Kristinsson, ráðgjafi hjá KPMG og Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í viðtali á Þjóðbrautinni í kvöld.
Vinnur gegn óvisssu í atvinnugreinum
Karl og Sævar benda á að í Finnlandi sé sérstakt ráðuneyti fyrir framtíðarmál, og framtíðarráðherra starfandi og einnig sé svo í Svíþjóð. Þannig búi þjóðirnar sig undir hvað getur gerst í framtíðinni. Á Íslandi væri ferðaþjónustan sem atvinnugrein ekki í þeirri óvissu sem raun ber vitni.
Skipulögð framtíðarsýn Finna
Sævar bendir á hver mikla áherslu aðrar þjóðir leggi á að kortleggja framtíðina. “Nágrannaþjóir okkar og líka Arabalöndin haf afarið þá leið að sinna framtíðarmálum sérstaklega, Finnar eru með 17 manna þingnefnd sem hefur það sérstaka verkefni að rýna til framtíðar og Svíar eru með ráðherra framtíðarmála”, segir Sævar og tekur undir að ferðaþjónustan, stærsta atvinnugrein Íslendinga sé einmitt dæmi um að þar hefði þurft mikinn og betri kortlagningu fyrir framtíðina. “Finnska þingnefndin gefur út skýrslu á fjögurra ára fresti um hvernig þingið skuli hugsa, svona 15 til 20 ár fram í tímann”, bætir Sævar við.
Verkfæri til að meta framtíðina
“Við kynntum eiginlega fyrir alveg tíu árum síðan aðferð til að meta framtíðina sem nefnist Sviðsmyndir”, segir Karl um störf Nýsköpunarstofnunar og meina þá það sem nefnt er á ensku “Scenarios” . “Það er ein af fjölmörgum aðferðum og er í sjálfu sér heil verkfæraskemma af aðferðum”, segir hann. Allt er það til þess að meta óvissu í framtíðinni og hvar Ísland geti ýtt undir framfarir.
Mikil vakning í framtíðarfræðum
Karl bendir á að Bretar og Bandaríkjamenn hafi verið upphafsmenn fræðigreina sem fjalla um framtíðargreiningu og Frakkar hafi mikið notað slíka aðferðafræði.
Áhættugreining fyrir Ísland
Á komandi dögum mun KPMG kynna áhættugreiningu fyrir ferðaþjónustuna til 2030. Sævar segir að nota þurfi meira fé í framtíðargreiningu í atvinnulífinu, ekki ósvipað og almannavarnir greina hættur í framtíðinni.
Rætt verður við Sævar og Karl á Þjóðbrautinni á Hringbraut á mánudag. Þátturinn er á dagskrá kl.21.00.