Framtíðarbensínstöðin? eitt stykki innstunga? nei.

Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, er gestur í þætti Jóns G. í kvöld. Mikil umræða hefur verið að undanförnu í bílageiranum um fyrirhugað bann við nýskráningu bensín- og dísilbíla frá og með 2030. Því er eðlilegt að spyrja hvernig framtíðarbensínstöðin lítur út. Eitt stykki innstunga? Jón er ekki á því heldur breytist þær í fjölorkustöðvar með blómlegri erslunar- og veitingaþjónustu. Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Haga á Olís og kemur sameiningin væntanlega til framkvæmda um miðjan nóvember þegar Samkeppniseftirlitið hefur metið hæfi kaupenda á nokkrum eignum Olís og Haga sem um hefur verið samið og eru skilyrði fyrir kaupunum.