Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu og þær áskoranir sem þar blasa við, ekki síst hvað viðkvæma náttúru Íslands varðar, eru helsta umræðuefni fjórða og síðasta þáttar Áfanga á Hringbraut í kvöld, en þættirnir eru unnir í tilefni af 90 ára afmæli Ferðafélags Íslands í ár.
Afmælisþættirnir hafa vakið mikla athygli sakir alls þess fróðleiks sem þar kemst til skila, en fjölmargir þaulvanir leiðsögumenn og náttúrunnendur ræða þar fortíð og framtíð ferðamennsku um óbyggðir landsins.
Allir þættirnir fjórir verða svo endurasýndit i beit að viku liðinni, frá klukkan 20:00 til 22:00 fimmtudaginn 10. ágúst.
Þáttur kvöldsins hefst klukkan 21:30.