Framsóknarfólk brjálað út í sigmund davíð

Tilraun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á kosninganótt til að „eigna sér“ Lilju Dögg Alfreðsdóttur, varaformann Framsóknarflokksins, hafa farið vægast sagt illa í framsóknarfólk.

Í ávarpi til stuðningsmanna sinna kallaði Sigmundur Lilju Dögg „Miðflokkskonuna innan Framsóknarflokksins.“ 

Á honum mátti skilja að Lilja væri einhvers konar lykill að ríkisstjórnarsamstarfi, ef formanninum Sigurði Inga Jóhannssyni yrði vikið frá eða jafnvel úr formannsembætti. Að Lilja væri eins konar Fimmta herdeild eða útsendari hans sjálfs innan Framsóknarflokksins.

Framsóknarfólk er ekki beinlínis sátt við þessa framkomu formannsins fyrrverandi.

Alþingismaðurinn Elsa Lára Arnardóttir sá ástæðu til að bregðast við ummælum Sigmundar:

„Ég held að Sigmundi hafi hér vafist tunga um tönn. Lilja Dögg er eins og flest allir vita frambjóðandi og varaformaður Framsóknarflokksins.
Lilja er algjörlega heil í málflutningi sínum sem öflugur fulltrúi framsóknarmanna.“

Og ekki skorti viðbrögð flokkssystkina hennar.

Kunnur framsóknarmaður, Sveinbjörn Eyjólfsson, segir: „Afar óheppilegt fyrir SDG ef hann vill eitthvað hafa með Lilju í frekara samstarfi.“ Og bætir við: „Hann veit ekki hvað það þýðir að biðjast afsökunar.“

Stuðningskona Elsu Láru, Ragna Ívarsdóttir, dró ekki af sér: „Ég varð brjál[uð] að heyra hann segja þetta. Hann er ekki í lagi.“

Annar þekktur framsóknarmaður, Jóngeir Hjörvar Hlinason, hafði þetta að segja: „Ég varð eiginlega orðlaus og verð það sjaldan, þetta er slæmt.“

Þórir Grétar Björnsson sparar heldur ekki orðin: „SDG er skíthæll.“

Viðmælendur Hringbrautar telja einsýnt að klofningur og viðvarandi innanmein Framsóknarflokksins muni flækja mjög stjórnarmyndunarviðræður, sem séu þó nógu erfiðar nú þegar.