„Sameiginlegur fundur Landsstjórnar og þingflokks Framsóknarflokksins leggur höfuðáherslu á þá stefnu flokksins að auðlindir séu þjóðareign. Því mun Framsóknarflokkurinn fylgja því fast eftir á kjörtímabilinu að slíkt ákvæði verði sett í stjórnarskrá landsins.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsóknarflokknum eftir árlegan vinnufund flokksins á Sauðárkróki. Einnig ætlar flokkurinn að flokkurinn hann setji í forgang hjá sér að flutningskostnaður á raforku verði jafnaður á þessu kjörtímabili.
„Einnig setur fundurinn það í forgang að flutningskostnaður raforku verði jafnaður á kjörtímabilinu, sem er ein af mikilvægustu byggðaaðgerðum sem ráðast þarf í. Framsóknarflokkurinn hefur ávallt staðið vörð um að í landinu búi ein þjóð sem þarf að hafa jafnan aðgang að grunnþjónustu og þarna er mikilvægt skref stigið í þá átt.“
Þá segir flokkurinn að hann leggist alfarið gegn sölu ríkiseigna á borð við Keflavíkurflugvöll og Landsvirkjun.
„Þá áréttar fundurinn þá stefnu Framsóknarflokksins að margir mikilvægustu innviðir samfélagsins séu í eigu þjóðarinnar og þannig njótum við öll ágóðans af þeim. Um er að ræða innviði eins og Landsvirkjun, Landsnet, RARIK og Flugstöð Leifs Eiríkssonar svo einhverjir séu nefndir.“