Framsóknarflokkur ekki klofinn

 

Guðfinna Jóhanna  Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, segir flokkinn tilbúinn til þátttöku í ríkisstjórn. Hún segir flokkinn ekki klofinn.

Hún segir formannskjörið vissulega hafa tekið á en óttast ekki að eftrirmálar þess vegna muni skaða flokkinn. Guðfinna segir ótímabært að krefjast ráðherrasætis, jafnt fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, sem hvern annan.

Þetta kemur fram í Þjóðbrautarþætti kvöldsins, sem er á dagskrá klukkan 21:00.

Gunnar Alexander Ólafsson, en hann er einnig gestur í þættinum, segir að eðlilega verði Sigmundur Davíð ráðherra fari Framsóknarflokkurinn í ríkisstjórn. Hann nefndi nokkur rök fyrir þeirri skoðun sinni, svo sem reynslu af ráðherradómi og þeirrar þekkingu sem hann býr yfir.

Gunnar Alexander er félagi í Samfylkingunni. Hann lýsir trausti til Loga Einarssonar núverandi formanns Samfylkingarinnar.