Í ályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins er kallað eftir því að breytingar eigi sér stað í sjávarútvegskerfi Íslendinga og að það verði fest í stjórnarskrá að fiskurinn í sjónum sé auðlind í eigu þjóðar eins og aðrar auðlindir landsins.
Með það að sjónarmáli telur miðstjórn mikilvægt að breytingar verði gerðar á kerfinu í sjávarútvegi.
Það þurfi að staðfesta í stjórnarskrá að fiskurinn í sjónum sé eins og aðrar auðlindir landsins í eigu þjóðarinnar.
Brýnt er að sátt ríki um að stærri hluti af ofurhagnaði einstakra fyrirtækja renni til þjóðarinnar.
Ályktun haustfundar miðstjórnar Framsóknarflokksins
Framsókn er kröftug og öflug liðsheild með sameiginlegan vilja til að bæta samfélagið svo allir fái notið sín í lífi og starfi. Framsókn er í farsælli ríkisstjórn þriggja flokka og uppskar ríkulega í síðustu Alþingis- og sveitarstjórnarkosningum. Glæsilegur árangur Framsóknar um allt land sýnir að vinnusemi, árangur og stefnumál flokksins í forystu eiga sterkan hljómgrunn meðal kjósenda.
Miðstjórn Framsóknar fordæmir ólöglega og óréttlætanlega innrás Rússlands í Úkraínu og vill árétta mikilvægi þess að Ísland ásamt bandalagsþjóðum sínum haldi áfram að styðja af fullum krafti við frjálsa og fullvalda Úkraínu og íbúa hennar.
Haustfundur miðstjórnar Framsóknar lýsir yfir ánægju með störf Framsóknar í ríkisstjórn. Fyrir liggur að mörg áherslumál flokksins hafa fengið góðan framgang og verulegur árangur er í augsýn.
Má þar meðal annars nefna:
- Hækkun endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar í 35%
- Fyrirhugaða byggingu Þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir
- Innleiðingu farsældarlaganna og breytingar á barnaverndarlögum
- Átaki í að fjölga íbúðum og markmið um jafnvægi á húsnæðismarkaði til að verja efnahag heimilanna
- Sundabraut
- Loftbrú
- Áhersla á fæðuöryggi
- Að lýðheilsa sé sett í forgrunn ákvarðanatöku og stefnumótunar
- Jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag
Fundurinn leggur áherslu á að til að hægt sé að mæta skuldbindingum í loftslagsmálum og auka lífsgæði á Íslandi þurfi aukna endurnýjanlega græna orku. Styðja þarf við græna uppbyggingu og fjárfestingar í innviðum vegna orkuskipta. Skoða verður möguleikana sem felast í framleiðslu og útflutningi á rafeldsneyti. Miðstjórn leggur áherslu á að nú sem fyrr leggst Framsókn gegn öllum hugmyndum um útflutning á raforku um sæstreng. Miðstjórn Framsóknar telur brýnt að gerðar verði breytingar á kerfinu í sjávarútvegi. Það þarf að staðfesta í stjórnarskrá að fiskurinn í sjónum sé eins og aðrar auðlindir landsins í eigu þjóðarinnar. Brýnt er að sátt ríki um að stærri hluti af ofurhagnaði einstakra fyrirtækja renni til þjóðarinnar.