Rafni Einarssyni fulltrúa Framsóknarflokksins í hverfisráðsins Breiðholts hefur verið vikið úr ráðinu af flokksforystunni eftir ummæli sem hann lét falla um múslima á fésbókarsíðu sinni. Þar skrifaði hann eftirfarandi: "Allir múslimar eiga að vera sendir til síns heima til Sádí Arabíu.“
Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem framsóknarmaðurinn tjáir sig með þessum hætti, en á meðal annarra ummæla hans um múslima eru þessi: "Engum af þeim virðist vera treystandi, þeir eru til alls vísir.“ Af sama toga eru: "Múslimar vilja alla homma feiga.“
Yfir 2.100 innflytjendur af erlendum uppruna eru í Efra-Breiðholti einu og sér. Rafn hefur meðal annars verið í framboði fyrir Framsóknarflokkinn til Alþingiskosninga, en hann hefur gegnt stöðu áheyrnarfulltrúa í hverfisráði Breiðholts fyrir hönd Framsóknarflokksins frá síðustu borgarstjórnarkosningum.
Rafn hefur ítrekað tekið undir orð Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur oddvita framsóknarmanna í Reykjavík sem sagði fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2014 að hún vildi ekki veita Félagi múslima lóð undir mosku.