Benedikt Jóhannesson ritstjóri Vísbendingar og útgefandi Frjálsrar verslunar segist hafa heimildir fyrir því að Framsóknarfloklkurinn hafi tafið áætlun um losun fjármagnshafta um allt að eitt ár.
Þetta kom fram í máli hans í þættinum Ritstjórunum sem var á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar klukkan 21:30 í gærkvöld en þar ræddi Benedikt um margar hliðar haftalosunarinnar og hvaða áhrif hún muni hafa á íslenskt samfélag.
Benedikt fullyrðir í þættinum að áætlun um fjármagnshöft hafi verið tilbúin í fjármálaráðuneytinu fyrir réttu ári. Framsóknarflokkurinn hafi hins vegar ekki verið reiðubúinn til að fallast á þá afdráttarlausu skilmála sem hún fól í sér og lúta meðal annars að þeim stöðugleikamarkmiðum sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur ávallt talað fyrir, en hann vill að allur ávinningur ríkisins af losun haftanna renni til niðurgreiðslu á skuldum ríkissjóðs; allt verði gert til að koma í veg fyrir þensluáhrif af völdum áætlunarinnar.
"Það tók sjálfstæðismennina allan þennan tíma til að tala félagana sína til," segir Benedikt í þættinum og segist ekki geta hugsað þá hugsun til enda að Framsóknarflokkurinn hefði óáreittur fengið að leika sér með þessa fjármuni.
Með Bendikti í þættinum í gærkvöld voru Ingimar Karl Helgason ritstjóri Reykjavíkur vikublaðs og Þórunn Elísabet Bogadóttir aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Horfðu á klippu úr þætti kvöldins: