Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri og þjóðmálarýnir til hálfrar aldar segir þingmenn Framsóknarflokksins vera \"bara gæslumenn sérhagsmuna\" en tveir þeirra skeri sig þó úr með sjúklegum einkennum valdshyggju.
Þetta kemur fram í nýjustu bloggfærslu Jónasar, en þar er hann ekki vanur að skafa utan af hlutunum og talar tæpitungulaust í stuttum og snaggaralegum pistlum sínum. Nú beinir hann orðum sínum að Framsókn og tekur þar tvo þingmenn hans sérstaklega fyrir, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Vigdísi Hauksdóttur sem sýni í tali sínum og gerðum afar sjúkleg einkenni valdshyggju, með öðrum orðum fasisma.
Jónas vitnar í söguna: \"Eftir stríð sálgreindu félagsvísindamenn í Kaliforníu uppgang fasisma, nazisma og falangisma í aðdraganda stríðsins mikla. Var það gert með sálfræðiviðtölum við slíkt fólk. Niðurstaðan var birt í mörgum bókum, einkum árið 1950 í „The Authoritarian Personality“ eða „valdshyggjumaðurinn“. Það orð lýsir fyrirbærinu betur en „fasisti“, sem vísar bara til tákns í skjaldarmerki. Sé skilgreiningin notuð á þingmenn Framsóknar, er ekki hægt að kalla þá valdshyggjumenn. Þeir eru bara gæzlumenn sérhagsmuna. Fyrir utan Sigmund Davíð og einkum Vigdísi Hauks, sem sýna í tali sínu og gerðum afar sjúkleg einkenni valdshyggju (eða fasisma).\"