Framsókn síst hrifin af túristum

Framsóknarfólk er síst hrifið af því erlenda ferðafólki sem leggur leið sína til Íslands ef marka má nýja skoðanakönnun sem markaðs- og könnunarfyrirtækið MMR hefur gert og birt er í dag.

Langflestir landsmenn eru þó ánægðir með aukinn fjölda erlendra ferðamanna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 80,0% vera jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi og 7,5% sögðust vera neikvæð gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi.

Þeir sem höfðu hærri heimilistekjur voru frekar jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi en þeir sem höfðu lægri heimilistekjur. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu tekjuhæsta hópnum (milljón eða meira á mánuði í heimilistekjur) sögðust 89,3% vera jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum, borið saman við 62,3% þeirra sem tilheyrðu tekjulægsta hópnum (undir 250 þúsund á mánuði í heimilistekjur.

Þeir sem studdu Framsóknarflokkinn voru síður jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi en stuðningsfólk annarra flokka. Þannig sögðust 70,7% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn vera jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi, borið saman við 89,6% þeirra sem studdu Bjarta framtíð.