Framsókn ógnar afhroði samfylkingar

Þrjár nokkuð stórar skoðankannanir hafa birst allra síðustu daga. Þar sést glöggt að elstu flokkarnir; Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eiga í verulegum vanda. Allra þeirra virðist bíða verri útkoma en nokkru sinni áður.

 365GallupMBLMeðaltalÞingmenn
A-listi Björt framtíð8,27,77,77,96
B-list Framsóknarflokkur8,59,88,68,96
C-listi Viðreisn7,312,411,410,47
D-listi Sjálfstæðisflokkur22,722,621,522,315
P-listi Píratar22,818,317,519,513
S-listi Samfylking7,37,16,97,15
V-listi Vinstri græn15,114,517,715,811

  Félagsvísindastofnun vann könnunina fyrir Morgunblaðið.

A-listi Bjartrar framíðar. Flokkurinn fékk sex þingmenn árið 2013, þegar hann fékk 8,2 prósent atkvæða. Þegar meðaltal þriggja nýjusu kannanna er skoðað fengi Björt framtíð 7,9 prósent nú og héldi sínum sex þingmönnum.

B-listi Framsóknarflokks. Framsókn hefur nú nítján þingmenn, eftir glæstan sigur 2013, þegar flokkurinn fékk 24,4 prósent. Nú stefnir í að Framsókn fái 8,9 prósent og sex þingmenn. Missi þrettán þingmenn. Gangi þetta eftir mun Framsókn bæta afhroðsmet Samfylkingarinnar frá árinu 2013.

C-listi Viðreisn. Viðreisn hefur ekki boðið fram áður. Meðaltal síðustu kannanna sýnir að Viðreisn fái 10,4 prósent og sjö þingmenn.

D-listi Sjálfstæðisflokks. Flokkurinn hefur nú nítján þingmenn, en hann fékk 26,7 prósent 2013. Versta kosning í sögu Sjálfstæðisflokksins var árið 2009 þegar hann fékk 23,7 prósent og sextán þingmenn. Meðaltal nýjustu kannanna sýna að nú fengi Sjálfstæðisflokkurinn 22,3 prósent, það er verstu niðurstöðuna í nærri nítíu ára sögu sinni. Gangi þetta eftir fær Sjálfstæðisflokkurinn fimmtán þingmenn, missir fjóra.

P-listi Pírata. Píratar fengu 5,1 prósent 2013 og þrjá þingmenn. Nú stefnir í miklar breytingar hjá Pírötum. Meðaltalið sýnir þá með 19,5 prósenta fylgi og þrettán þingmenn, myndi bæta við sig tíu þingmönnum.

S-listi Samfylkingar. Samfylkingin er í miklum vanda. Flokkurinn beið afhroð 2013 þegar hann fékk 12,9 prósent og aðeins níu þingmenn, tapaði tíu þingmönnum frá árinu 2009. Nú stefnir í að Samfylkingin fái aðeins fimm þingmenn kjörna, en meðaltal nýjustu kannanna sýnir Samfylkinguna með 7,1 prósent atkvæða.

V-listi Vinstri grænna. Vinstri græn mega svo sem vel við una. Meðaltalið sýnir flokkinn með 15,8 prósenta fykgi og það myndi færa flokknum ellefu þingmenn. 2013 fékk VG 10,9 prósent og sjö þingmenn. Gangi þetta efir bætir VG við fjórum þingmönnum.

-sme