Þingmennirnir Silja Dögg Gunnarsdóttir, í Framsóknarflokki, og Þorsteinn Víglundsson, í Viðreisn, mætast í Þjóðbraut í kvöld. Þau tala meðal annars um hvaða ríkisstjórn er líklegast að verði til.
Þau segja, hvort fyrir sig, að flokkar þeirra vilji vera með í næstu ríkisstjórn. Milli flokka þeirra er mestur munurinn í Evrópumálunum. Enn er möguleiki að Framsóknarflokkur og Viðreisn taki þátt í myndun næstu ríkisstjórnar.
Auk þeirra verða gestir Þjóðbrautar í kvöld; Sigríður Víðis Jónsdóttir, hjá Unicef og Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum.
-sme