Þriðjingur Íslendinga býr á heimilum sem höfðu áskrift að Netflix, að því er fram kemur í nýrri könnun MMR á lífsvenjum fólks. Yngra fólk var mun líklegra til að vera með Netflix áskrift.
Athygli vekur að það eru einkum þeir landsmenn sem styðja Framsókn og Vinstri-græna voru mun ólíklegri til að vera með Netflix áskrift. Hægrimenn og kratar, svo og stuðningsmenn Píratar sérstaklega eru líklegri til að nýta sér þessar nýjungar sem felast í Netflox.
Algengi Netflix áskriftar var misjafnt eftir lýðfræðihópum, sér í lagi eftir aldri. Til dæmis voru heimili 46,1% þeirra sem voru 18-29 ára með Netflix áskrift, en einungis um 7,7% heimila þeirra sem voru 68 ára og eldri. Tekjuhærri hópar voru einnig líklegri til að hafa Netflix áskrift heldur en tekjulægri hópar.