Yfir 70% landsmanna virðast hafa gætt sér á hangikjöti í gærdag, jóladag, ef marka má nýja könnun MMR um matarhefðir hér á landi. Athygli vekur að þessi réttur er einkum á borðum Framsóknarmanna og Samfylkingarfólks.
Þar með virðist loksins vera búið að finna samnefnara þessara tveggja flokka sem oft og einatt hafa eldað silfrið gráa við sunnanverðan Austurvöll og raunar víðar um land.
Í könnuninni var skoðað hvað fólk borðaði sem aðalrétt á jóladag í fyrra til að athuga hvort fólk haldi almennt í hefðina eða breyti út af laginu við val á aðalrétti á þessum hátíðardegi. Í ljós kom að yfir 75% þeirra sem tóku þátt í könnuninni ætla að borða það sama í ár og það borðaði í fyrra. Þeir sem halda hvað fastast í hefðina virðast vera þeir sem borða hangikjöt á jóladegi, en 94% þeirra sem borðuðu hangikjöt í fyrra ætla einnig að borða hangikjöt þetta árið.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 72,0% ætla að borða hangikjöt á jóladag, 7,3% sögðust ætla að borða hamborgarhrygg, 3,2% sögðust ætla að borða lambakjöt, 2,9% sögðust ætla að borða kalkún og 14,6% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.
Stuðningsfólk Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar eru sem fyrr segir líklegri en aðrir til að hafa hangikjöt sem aðalrétt á jóladag (84%) og (79%), en stuðningsmenn Bjartrar framtíðar eru ólíklegastir til að borða hangikjöt á jólunum (63%). Fólk á lífeyrisaldri er líklegast til að hafa annars konar lambakjöt (9%).