Þá er komið að Framsóknarflokknum í kynningarþáttum Hringbrautar. Sigurður Ingi Jóhannesson forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra sitja fyrir svörum hjá Karli Garðarssyni Alþingismanni. Karl er gamalkunnur fréttamaður og rifjar í kvöld upp það hlutverk sitt. En Karl er oddviti framsóknarmannna í Reykjavík norður. Farið er um víðan völl í þættinum í kvöld og rætt um þann mikla árangur sem ríkisstjórnin hefur náð á síðasta kjörtímabili. Þá er horft til næstu ára og stefna Framsóknarflokksins rædd í hinum ólíku málaflokkum. Ómissandi þáttur fyrir fólk með áhuga á stjórnmálum. Þátturinn verður sýndur kl. 22.00.
Framsókn og næstu fjögur ár
Fleiri fréttir
Nýjast