Íslendingar virðast almennt telja að erlent ferðafólk hafi jákvæð áhrif á efnahag landsmanna. Fólk á höfuðborgarsvæðinu er jákvæða í þeim efnum en fólk úti á landi og Framsóknarmenn gjalda helst varhug við túristinum.
Þetta eru meginniðurstöður nýrra skoðanakönnunar MMR sem kannaði nýlega viðhorf Íslendinga til erlendra ferðamanna á Íslandi. Almennt séð voru Íslendingar jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum og töldu þá hafa haft jákvæð áhrif á efnahag landsins, atvinnutækifæri, íslenskt samfélag, sitt bæjarfélag, miðborg Reykjavíkur og fjölbreytni í verslun og þjónustu. Aftur á móti voru fleiri sem töldu að erlendir ferðamenn hafi haft neikvæð áhrif á íslenska náttúru en jákvæð.
Af þeim sem tóku afstöðu taldi meirihluti erlenda ferðamenn hafa haft jákvæð áhrif á efnahag landsins(90,9%), atvinnutækifæri (82,8%), íslenskt samfélag (71,2%), sitt bæjarfélag ( 69,7%), miðborg Reykjavíkur (67,5%) og fjölbreytni í verslun (67,1%).
Af þeim sem tóku afstöðu töldu 51,8% að erlendir ferðmenn hafi haft neikvæð áhrif á Íslenska náttúru.
Munur var á viðhorfi til erlendra ferðamanna eftir búsetu. Þannig töldu þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu frekar að erlendir ferðamenn hefðu haft jákvæð áhrif á miðborg Reykjavíkur (71,2%) en þeir sem bjuggu á landsbyggðinni (61,4%). Hinsvegar voru hlutfallslega fleiri íbúar á landsbyggðinni sem töldu á erlendir ferðamenn hefðu haft jákvæð áhrif á verslun og þjónustu (71,3%) en íbúar á höfuðborgarsvæðinu (64,5%).
Þeir sem tilheyrðu tekjulægsta hónum (heimilistekjur undir 250 þúsund krónum á mánuði) töldu síður að erlendir ferðamenn hefðu haft jákvæð áhrif á atvinnutækifæri en þeir sem höfðu hærri heimilistekjur. Þannig sögðust 58,7% þeirra sem tilheyrðu tekjulægsta hópnum telja erlenda ferðamenn hafa haft jákvæð áhrif á atvinnutækifæri, borið saman við 92,4% þeirra sem tilheyrðu tekjuhópnum 600-799 þúsund krónur á mánuði.
Hlutfallslega fleiri þeirra sem studdu ríkisstjórnina töldu að erlendir ferðamenn hefðu haft jákvæð áhrif á Íslenskt samfélag (77,4%) en þeirra sem ekki studdu ríkisstjórnina (68,9%).
Þeir sem studdu Framsóknarflokkinn töldu síður að erlendir ferðamenn hefðu haft jákvæð áhrif á efnahag landsins (80,7%) en stuðningsfólk annarra flokka.