Framsókn með einkaframkvæmdum

 Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, sagði í Þjóðbrautarþætti að Framsókn sé fylgjandi að samgöngumannvirki verði unnin í einkaframkvæmd. Hann segist taka undir skoðanir Ólafar Nordal innanríkisráðherra um þetta mál.

Hann segir slíkt tíðkast á hinum Norðurlöndunum og þangað eigi að sækja fyrirmyndir.