Pilsnerfylgi er það nefnt þegar mælt fylgi við stjórnmálaflokk er á bilinu 2-3%. Viðreisn er nú komin með pilsnerfylgi skv. nýrri könnun Gallup en Framsóknarflokkurinn er í frjálsu falli og nálgast bjórfylgi eftir að hafa fengið 19 þingmenn í síðustu þingkosningum. Ölið er reyndar í sterkari kantinum en fylgi Framsóknarflokksins hefur ekki verið lægra í 8 ár, flokkurinn mælist nú með innan við 7%.
Rúv greinir frá glænýjum niðurstöðum Gallup. Framsóknarflokkurinn kemur mun verr út úr aflandsmálum og atburðum síðustu viku en hinn stjórnarflokkurinn skv. fylgismælingunni. 27% myndu nú kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem bætir við sig 5 prósentustigum. Píratar glata tveimur prósentustigum, fá 29,3%. 20% kjósa VG sem bætir við sig þremur prósentustigum. 5 % styðja BF, 3% Viðreisn, 9% Samfylkingu en eitt prósent fer á önnur framboð.
Mælingin er byggð á netkönnun Gallups sem gerð var 7. til 12. apríl. Heildarúrtak var 1.434 og var þátttökuhlutfall 56,1 prósent og af þeim nefndu 82,9 prósent flokk. Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?