Borgarstjórnarflokkur Framsóknarflokks og flugvallavina vill að Reykjavíkurborg hafi forgöngu að því að hefja formlegt samstarf við lögregluna í Reykjavík, innanríkisráðuneytið og samtök ferðaþjónustunnar um að finna leiðir til að halda utan um og skrá allar íbúðir sem leigðar eru í skammtímaleigu til ferðamanna í höfuðborginni.
Tilgangurinn er tvennskonar. Með henni er möguleiki til aukinna tekna hjá borginni. Þá segir að ekki sé „...hægt að líta framhjá alvarlegum fréttum sem hafa borist í fjölmiðla um íbúðir sem leigðar eru skammtímaleigu á vefsíðum, eins og airbnb, séu notaðar til vændissölu. Í þessu sambandi vísum við m.a. til nýsamþykktrar mannréttindastefnu Reykjavíkur 2.1.3. þar sem segir: „Reykjavíkurborg einsetur sér að vinna gegn kynferðislegu ofbeldi, vændi og mansali. Af þeim sökum er mikilvægt, í samvinnu við lögreglu, að sporna gegn rekstri nektardansstaða og rekstri sem snýst um vændiskaup.““