Stjórnin er á skjön við vilja fólksins

Framsóknarflokkurinn hefur svolítið týnt sinni pólitík i skiptum fyrir hatramma innanflokkssennu - og ekkert útlit er fyrir að átökunum linni í illa klofnum flokknum nema áköfustu stríðsherrarnir slíðri sverðin. Og kannski er ekki nokkur von til þess?

Þetta er mat þeirra Karls Garðarssonar, fyrrverandi fréttastjóra á Stöð 2, svo og þingmanns Framsóknar á síðasta kjörtímabili og Steingerðar Steinarsdóttur, ritstjóra Vikunnar en þeirri síðarnefndu sýnist raunar að hagsmunir einstaka flokksmanns vegi nú miklu hærra en pólitík flokksins og samvinnuhugsjónin og almenningi hugnist fráleitt glundroðinn, vilji fyrir vikið lítt eða ekkert af gamla flokknum vita.

Þau Karl og Steingerður rýna í fréttir vikunnar, en þáttinn með þeim má nú sjá hér á vef stöðvarinnar. Talið berst þar líka að óvinsældum ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar, en ólukkulegri byrjun nokkurs stjórnvalds er vandfundin í sögu landsins. Þau Karl og Steingerður segja ástæðuna vera veika og ósamstillta stjórn sem svari ekki kalli almennings frá því fyrir kosningar um að laga laskaða innviði samfélagsins, svo sem á sviði heilbrigðismála, menntamála og vegamála. Atvinnuveganefnd sé beinlínis verklaus, eins og Karl bendir á; það er í besta falli fáheyrt, en sennilega einsdæmi.

Taugatritringurinn í geira íslenskrar verslunar fær sinn tíma í umræðunni, en Costco virðist bjóða fjölmargar algengar heimilisvörur og margan nauðsynjakostinn á hálfvirði - og stundum betur - miðað við það sem þekkst hefur hér á landi, en spurningin er aðeins þessi; eru gæðin sambærileg við það sem íslenskrar búðir hafa boðið kúnnanum hingað til? Er margt af þessu kannski hálfgerð draslvara?

Krónan berst í tal, altso krafan eilífa um að hún skuli vera veik, sjávarútvegi og útflutingsfyrirtækjum til hagsbóta - og þá fær þróun íslenskunnar nokkra athygli undir lok þáttarins, en hann byrjar raunar á umræðu um voðaverkin í Manchester sem ritstjórar þáttarins eru sammála um að geti ekki tengst trúarskoðunum af nokkru tagi, enda um hreinræktaða villimennsku að ræða sem lúti engri hugsjón heldur bara ómerkilegum barbarisma.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.

i