Framsókn ánægðust með forsetann

Um 48% landsmanna segjast vera ánægð með störf forsetans, en 25% óánægð, ef marka má nýja könnun sem MMR birtir í dag. Þeim sem sögðust vera ánægð með störf forsetans fækkaði frá síðustu mælingu sem gerð var 7. desember.

Mikill munur er á ánægju með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Til dæmis sögðust 81% þeirra sem sögðust kjósa Framsókn ef kosið væri í dag vera ánægð með störf Ólafs Ragnars sem forseta, en einungis 18% þeirra sem sögðust kjósa Samfylkinguna.  

Í könnuninni sögðust 47,8% þeirra sem tóku afstöðu vera ánægð með störf forsetans, miðað við 54,8% sem sögðust vera ánægð með forsetans í könnun sem lauk þann 7. desember. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 25,2% vera óánægð en 26,9% sögðust hvorki vera ánægð né óánægð með störf forsetans.