Framsókn á leið í langa valdaútlegð

“Framsókn er á leið í langa valdaútlegð eftir næstu kosningar”, segir Ólafur Jón Sívertsen í pistli sínum hér á Hringbraut.is

Flokkurinn er að festast í 10% fylgi samkvæmt skoðanakönnunum sem hafa verið að mæla honum slíkt fylgi í allan vetur og jafnvel lengur. Flokkur forsætisráðherra hefur dottið úr 24% fylgi sem hann fékk í kosningunum 2013 og niður í þessi 10%. Það er ekki traustvekjandi að sá sem leiðir ríkisstjórn sé rúinn trausti. Ólafur segir um formann Framsóknar: “Framganga Sigmundar Davíðs er með þeim hætti að fólk botnar hvorki upp né niður í honum og veltir fyrir sér margvíslegum skýringum á framferði hans.” Ólafur hefur ekki trú á því að í næstu kosningum láti kjósendur blekkja sig með dauðum kanínum upp úr hatti XB og því muni hann lenda utan ríkisstjórnar.

Honum finnst staða Katrínar Jakobsdóttur vera að veikjast. Hún sjálf nýtur trausts í slíkum mælingum en flokkurinn er ekki að hala inn fylgi þrátt fyrir óvinsældir ríkisstjórnarinnar sem hefur einungis þriðjungsstuðning þjóðarinnar mánuð eftir mánuð.

Hann bendir á að ennþá séu landsmenn að refsa fyrrverandi stjórnarflokkum fyrir verk Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Sigfússonar. Vofa þeirra hvíli enn yfir VG og Samfylkingu.

Flokksþing Samfylkingar var veikt fyrir formanninn og flokksforystuna. Ljóst er að mikið stress er í gangi á þeim bæ. Nú er Dagur B. Eggertsson sterki maðurinn í flokknum en hann unir sér vel sem borgarstjóri og vill trúlega ekki breyta högum sínum á næstu árum. Hann fer ekki að fórna velgengni í borginn fyrir landsmálaleðjuslaginn.

Ólafur gerir ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn muni ekki ná sér á strik og þurfi að verja þau 25% fylgis sem hann mælist nú með í hverri skoðanakönnuninna á fætur annarri. Flokkurinn er í raun án varaformanns og mikill skortur er á hæfum konum í forystunni. Talað er um að þingflokkurinn sé skipaður allt of mörgum sviplausum þingmönnum og fátt um fína drætti þegar kemur að því að velta fyrir sér hverjir geti komið til greina í fremstu víglínu til að rífa flokkinn upp úr lægðinni. Hanna Birna, Illugi og Ragnheiður Elín hafi öll valdið miklum vonbrigðum sem ráðherrar.

Uppgangur Pírata er ótvírætt ákall á nýja flokka og nýjar lausnir, segir Ólafur í pistli sínum.