Það voru fleiri en starfsmenn Hringbrautar mættir í tökur á þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var í gærkvöld. Þar var enda rætt við Hrönn Friðriksdóttur spámiðil og hún spurð nokkurra spurninga um þá ástvini sem sagðir eru fylgja fólki eftir lát sitt, en umræða um spámiðla hefur verið hávær í fjölmiðlum að undanförnu.
Hrönn segir í þættinum, sem hægt er að nálgast hér á hringbraut.is að Íslendingar trúi almennt mjög mikið á líf eftir dauðan og fjöldi fólks stundi það að fara í spátíma til miðla eins og hennar. Þjóðin sé að mörgu leyti svolítið dulræn, hér búi margar gamlar sálir og landsmenn hafi löngum trúað á álfa og huldufólk.
Hrönn segir fólk oftast geta áttað sig á því hvaða ástvinir fylgi þeim að handan, því það er oft í samhengi við það samband eða þau tengsl sem voru þegar viðkomandi var á lífi. Hún segir marga samt hafa áhyggjur af því, hvort ástvinir séu þá að fylgjast með þeim í einu og öllu, jafnvel á klósettinu! Þetta séu áhyggjur sem fólk þurfi þó ekki að hafa, enda hafi flestir öðrum hlutverkum að sinna þegar það er komið yfir móðuna miklu.
Þá er Hrönn spurð um það ljós, sem margir eru sagðir sjá ef þeir komast í nálægð við dauðan og hvað gerist ef börn til dæmis fæðast andvana eða konur missa fóstur.
Ég bara spyr er á dagskrá Hringbrautar öll þriðjudagskvöld, en endursýndur reglulega yfir vikuna.