Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, var gestur Þjóðbrautar í gærkvöld. Búvörusamningurinn var meðal þess sem rætt var. Páll Valur sagði þar að skynsamlegast væri að gera ekkert með þann samning sem nú bíður meðferðar Alþingis, nær væri að framlengja gildandi samninginn og vinna að gerð nýs búvörusamnings.
Páll Valur taldi upp marga annmarka, sem hann og félagar hans í Bjartri framtíð, finna að þeim samningi sem bíður meðferðar Alþingis. Hann benti jafnframt á að þá miklu andstöðu sem er við samninginn, innan þings og utan.