Framkvæmdir á bakka farnar af stað

Framkvæmdir vegna byggingar kísilvers á Bakka við Húsavík hófust formlega í gær. Gert er ráð fyrir að byrjað verði að ráða fólk til starfa í verksmiðjunni á síðari hluta þessa árs.
 

Byrjað var á veglagningu og jarðvegsvinnu á Bakka í sumar, eins og fram kemur í frétt RÚV í gærkvöld, en formleg opnunarhátíð vegna framkvæmdanna fór fram í dag með nokkurri viðhöfn. Búast má við að þegar að mest verði muni um 450 manns starfa við byggingu kísilversins en byggingarkostnaður er talin verða um 40 miljarða króna. Forsvarsmenn framkvæmdanna segja að í hönnun og undirbúningi byggingarinnar hafi verið tekið sérstakt tillit til þess að verið sé að byggja á jarðskjálftasvæði og að það sé alveg öruggt að engin hætta sé á ferð.

Burkhard Dahmen framkvæmdarstjóri SMS Group sem hefur umsjón með byggingu verksmiðjunnar segir að auk þess hafi verið tekið tillit til íslenskra annarra umhverfisþátta eins og vindstyrkst og mögulega snjóþunga. Hann segir öryggi starfsmanna og fjárfestingarinnar vera tryggt.

Gert er ráð fyrir að starfsemi í kísilverinu geti hafist í lok 2017. Um 120 til 130 starfsmenn munu starfa í kísilverinu og byrjað verður að ráða í stjórnenda- og millistjórnendastöður síðara hluta þessa árs. Reiknað er með að búið verða að ráða allt starfsfólk um mitt ár 2017. Lögð verður áhersla á að ráða Íslendinga til starfa, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið.

Peter Wenzel yfirmaður orkusviðs PCC segir að horft verði til þess að ráða aðallega Íslendinga: \"Við vonum að við finnum mjög hæft fólk sem hefur áhuga á að búa á Húsavík. Við munum leggja okkur mjög fram um að vera ábyrgur og góður vinnuveitandi og erum þess fullviss að við náum að setja saman gott teymi,“ eins og hann segir við RÚV í kvöld.