Framkvæmdastjóri krefst þess að Íslendingar hætti að taka við hælisleitendum - þangað til við höfum efni á því

Ívar Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Sævörum, skrifar harðorða aðsenda grein í Morgunblaðið í gær. Krefst Ívar þess að Íslendingar hætti að taka við hælisleitendum á meðan að landsmenn eiga ekki efni á því og að ástandið sé óöruggt vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins.

Ívar er viðskiptafræðimenntaður og flytur út rækjur í gegnum fyrirtæki sitt. Segir hann málið snúist ekki um kynþátt, trúarbrögð eða annað slíkt og það sé aðeins til að afvegaleiða umræðuna. Málið snúist um fjármál og heilbrigðismál.

„Á meðan ríkið mokar núna milljörðum króna á dag til fólksins í boði framtíðarskattpíndra barna okkar hlýtur að mega gera þá kröfu á móti að ýmis vitleysa ríkisins verði skorin almennilega niður við trog. Þar má byrgja á hælisleitendum: Ófært er að öðrum hverjum íbúa heimsins sem dettur í huga að sækja um landsvist hér sé það ekki aðeins leyfilegt heldur sé okkur skylt að taka við honum og moka síðan milljörðum króna á ári í allt það sem honum tengist á fjölda ára, með sérrréttindi langt umfram aðra þá sem hér búa.“

Segir Ívar að Ísland sé nú í ánauð Covid-kreppu og því ætti að liggja í augum uppi að hætta hverju því sem eykur á þá píningu. „Nei, öðru nær, blásið er í lúðrana og fjöldanum hleypt í þverrandi sjóðina sem landinn hafði stoltur safnað í áratugum saman.ׅ“

Þá telur Ívar að mikil áhætta og álag sé fólgið í því að taka við hælisleitendum á þessum Covid-tímum og margar aðrar þjóðir séu að takmarka það. Þá er hann ósáttur við feluleik stjórnvalda. „Sóttvarnarhúsum okkar fjölgar enda er drjúgur hluti vistmanna úr hópi pólitískra hælisleitenda. Málið er svo viðkvæmt í pólitíkinni að fáir falast eftir tölum um hlutfall hælisleitenda í sóttkví, hvað þá smituðum eða smitendum samkvæmt sóttrakningu, þótt komið hafi smitsprengjur í þeim hópum.“

Krafa Ívars er einföld en hann segist óttast að langt í sé í að hún verði uppfyllt. „Hættum að taka við hælisleitendum þar til það er öruggt og við höfum efni á því.“