Á Wikipediu er að finna lista með sigurvegurum Eurovision síðustu árin. Nú hefur einhver bjartsýnn eða góður spámaður breytt síðunni og segir þar að Ísland hafi sigrað í keppninni. Sá sem breytti Wikipedia-síðunni spáði Ástralínu svo öðru sæti.
Ástralía kemur einnig við sögu í þessari frétt, því þrálátur orðrómur er uppi um að fari svo að Ástralía sigri í keppninni muni keppnin vera haldin hér á landi. Það sem ýtir undir að þetta sé rétt er að Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri gat hvorki neitað nei játað þegar RÚV hafði samband við hann.
Í frétt RÚV kemur einnig fram að Ástralía hefur gert tveggja ára samkomulag við ónefnt Evrópuríki um að halda keppnina fari svo að landið sigri í kvöld eða á næsta ári. Þá segir einnig að forsvarsmenn Eurovision, þar á meðal Jon Ola Sand framkvæmdastjóri keppninnar, hafi komið hingað til lands fyrr á árinu til að kanna aðstæður.