Flokkstjórn Samfylkingarinnar samþykkti ekki tillögu um að minnsta kosti einn frambjóðandi yngri en 35 ára skuli vera í einu af þremur efstu sætunum á framboðslistum flokksins.
Að sögn Kjarnans var tillagan lögð fram á flokksstjórnarfundi flokksins um helgina.
„Samkvæmt tillögunni átti einnig ávallt að leitast við að á framboðslistum séu frambjóðendur yngri en 35 ára í að minnsta kosti fimmtungi þeirra sæta sem stillt er upp í. Í tilkynningu frá Samfylkingunni segir að í umræðum hafi komið fram „ríkur stuðningur við markmið tillögunnar, þótt deildar meiningar hafi verið um aðferðina, og var samþykkt að Samfylkingin myndi grípa til sérstakra aðgerða til þess að styðja við framgang ungs fólks og nýrra frambjóðenda fyrir næstu kosningar\",“ segir í grein Kjarnans.
Fram kemur að þess í stað hafi tillaga Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar, um að fjölga ungu fólki í efstu sætum framboðslista til næstu Alþingiskosninga verið samþykkt.