Framferði norður-kóreumanna

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (Sþ) er ein af stofnunum Sþ og hefur ráðið það hlutverk að viðhalda friði og öryggi meðal þjóða. Ráðið er eina stofnun Sþ sem hefur völd til að taka ákvarðanir sem eru bindandi fyrir öll aðildarríki Sþ samkvæmt stofnskrá Sþ. Ákvarðanir þessar kallast ályktanir. Í ráðinu sitja 15 fulltrúar og 5 þeirra eru með fast sæti og hafa neitunarvald en 10 fulltrúa kýs Allsherjarþing Sþ.

Að undirlagi Bandaríkjanna hefur öryggisráðið ákveðið að Norður-Kóreu skuli Sþ beita refsiaðgerðum. Þrettán embættismenn og fjórir lögmenn frá Norður-Kóreu eru settir í ferðabanna og þeim meinaður aðgangur að inneignum þeirra í erlendum bönkum. Í ályktun ráðsins segir að Norður-Kórea valdi óstöðugleika og spennu með framferði sínu. Þess er krafist að Norður-Kórea stöðvi án tafar allar frekari tilraunir með skammdræg flugskeyti og langdrægar eldflaugar. Ályktunin leggur áherslu á friðsamlega lausn ágreinings við samningaborðið.

rtá