John Dean, sem var lögmaður Hvíta hússins á tíma Watergate hneykslisins sem batt enda á forsetatíð Richards Nixons, segir að nú stefni í að að Donald Trump hljóti sömu örlög. Hann sagði í viðtölum um helgina að framburður Rick Gates samstarfsmanns Paul Manaforts fyrrum kosningastjóra Trumps geti gert út af við setu Trumps í Hvíta húsinu.
Gates játaði sig sekan fyrir helgi af ákærum um samsæri og um að bera ljúgvitni og samþykkti jafnframt að vinna með Robert Mueller sérstökum saksóknara. John Dean segir að þetta sé mikið áhyggjuefni fyrir Manafort sem sætir fjölda ákæra og fyrir Trump sjálfan. Hann sagði í Twitter-færslu á laugardag að Manafort líti sífellt meira út fyrir að vera lykillinn að samvinnu Trump-framboðsins við Rússa. Ef Gates geti vitnað um að Manafort hafi gengið fram með samþykki Trumps, þá sé úti um forsetann.