Framboði til varaformanns var illa tekið

Landsfundir bæði Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna fara fram nú um helgina. Á meðan engra tíðinda er að vænta af átökum í kosningu um varaformannsembætti Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í dag, segja fulltrúar landsfundar VG að þeir telji ómögulegt að spá fyrir um niðurstöðu kosningar um kjör varaformanns innan hreyfingarinnar.

Sóley Björk Stefánsdóttir, oddviti VG á Akureyri, ákvað seint í gærkvöld að tilkynna að hún sæktist eftir varaformannsembættinu. Verður kosningaslagur milli þeirra Björns Vals Gíslasonar í dag. “Það urðu mér vonbrigði að Daníel [Arnarsson] skyldi ekki taka áskorun félaga okkar um framboð. Það er ekki vegna þess að Daníel sé svo æðislegur, sem hann er. Það er heldur ekki vegna þess að Björn Valur sé svo glataður, sem hann er ekki. Það er af því að þeir eru ólíkir og af því að ég vil að við höfum val,\" segir Sóley Björk um ástæðu eigin framboðs til varaformanns.

Sóley segir að framboði Daníels hafi verið illa tekið. Það sé hluti þeirrar ástæðu að hún bregðist við: „Mér fannst leiðinlegt að heyra að illa hefði verið brugðist við framboði Daníels og þessu vil ég breyta. Þessu tel ég mikilvægt að breyta. Þess vegna skrifaði ég undir áskorunina til Daníels. En við eigum ekki alltaf að bíða eftir að aðrir geri hlutina. Þess vegna ætla ég að vera sjálfri mér samkvæm og tilkynna það hér og nú að ég býð mig fram til varaformanns,“ sagði Sóley Björk er hún tilkynnti um framboð sitt á landsfundi VG á Selfossi í gærkvöld.

Hún sagði við sama tækifæri að hún og Björn Valur væru ólíkt fólk. „Við höfum hvort fyrir sig ólíka eiginleika sem svo er ykkar að leggja mat á hvort þið teljið heppilega í fari varaformanns,“ sagði Sóley Björk. Í samtali við Hringbraut nefndi hún að störf varaformanns snúist ekki síst um innra starf flokksins.

Björn Valur Gíslason vildi ekki tjá sig um framboð Sóleyjar Bjarkar sem áður studdi Daníel sem hætti við eigið varaformannsframboð síðdegis í gær. Áður höfðu 74 fulltrúar VG stutt framboð Daníels opinberlega og sett nöfn sín á stuðningslista. Hringbraut hefur spurt nokkra landsfundarfulltrúa hvaða tilfinningu þeir hafi fyrir því hvort Sóley Björk eða Björn Valur muni hafi betur í kosningunni. Enginn treystir sér til að spá fyrir um úrslit en margir hafa sagt á opinberum vettvangi að það yrði VG til mikils tjóns að missa Björn Val, þótt ljóst sé að hann er umdeildur innan flokksins. Flokkurinn er klofinn í tvær fylkingar, önnur vill skipta um varaformann en hin lítur á Björn Val sem einn sterkasta mann flokksins og finnur honum til tekna \"að vera öðruvísi og tala tæpitungulaust\" eins og einn landsfundargesta orðar það. Björn Valur sagði í viðtali við Hringbraut þegar framboð Daníels var í deiglunni að pólitískri þáttöku hans fyrir Vinstri græna myndi ljúka fái hann ekki áframhaldandi umboð sem varaformaður. Það sé ekki hótun heldur sé lífið einfaldlega þannig. Vísar Björn Valur til fyrri verka sinna innan flokksins í því samhengi og segir að án trausts til áframhaldandi starfa sé nánast sjálfhætt.

Á sama tíma stefnir ekki í nein átök í kosningu til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á þeirra landsfundi. Klappað var fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að loknu þakkarávarpi sem Bjarni Benediktsson flutti henni við setningarræðu í gær. Hanna Birna hættir varaformennsku en Ólöf Nordal mun taka við hennar embætti. Landsfundargestir Sjálfstæðisflokksins risu úr sætum er þeir þökkuðu Hönnu Birnu hennar varaformannsframlag en hún hætti við að sækjast eftir endurnýjuðu trúnaðarumboði fyrir nokkrum vikum.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, mun áfram bjóða sig fram til þess embættis sem og Bjarni Benediktsson sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Getur ekkert komið í veg fyrir að þau tvö fái góða kosningu að sögn landsfundargesta flokkanna tveggja sem Hringbraut hefur rætt við.

(Fréttaskýring: Björn Þorláksson)