Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir tillögur Eyglóar Harðardóttur, húsnæðismálaráðherra mjög óskýrar eins og þær komi fram í húsnæðisfrumvörpum ráðherrans. Unnið sé að uppbyggingu húsnæðis í bæjarfélaginu þvert á flokka og þar á bæ sjái men ekki skýrar línur í hvað ráðherrann hyggst gera eða hvað er í vændum. Karen Elísabet segir þetta á Hringbraut í kvöld.
Karen býður sig fram til forystu í Suðvestur kjördæmi í prófkjöri flokksins sem fer fram á laugardag. Hún segir að framboð Þorgerðar Katrínar myndi “breyta öllu” fyrir sig þar sem Þorgerður muni taka fylgi af Sjálfstæðisflokknum í kjördæminum. Í ljós kom seinni partinn í dag að Þorgerður fer fram í Kraganum fyrir Viðreisn og því mun það ógna fylgi sem Karen Elísabet og fleiri frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins reiða sig á.
Mikil samkeppni er um efstu sætin í Kraganum hjá Sjálfstæðismönnum.
Elín Hirst býður sig fram í 2.-3.sæti í Kraganum, Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúí í Hafnarfirði býður sig fram í prófkjörinu í 2.-3 sætið, Jón Gunnarsson, þingmaður sækist eftir 2. sæti, Kristín Thoroddsen varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði sækist eftir 2.-4. Sæti, Óli Björn Kárason, varaþingmaður óskar eftir 3.sætinu. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður sækist eftir 2.-4 sæti í kjördæminu og Vilhjálmur Bjarnason, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna vill 2.-3 sætið.