Framboð sigríðar ingu var misráðið

"Ég er hugsi yfir stöðunni í Samfylkingunni eins og hún birtist mér í umræðunni á íslensku samfélagsmiðlunum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar á fésbókarfærslu sinni. Og segir svo: "Ég þekki vel bæði Árna Pál og Sigríði Ingibjörgu og hef átt með þeim langa samleið í stjórnmálum. Þau eru ekki klækjastjórnmálamenn og þess vegna rennur mér til rifja að sjá þau í aðalhlutverkum í þeim darraðadansi sem fram fór um helgina á landsfundi Samfylkingarinnar."


Og enn segir Ingibjörg Sólrún í færslu sinni. "Það er ekkert athugavert við það að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni en Samfylkingin hefur mótað sér ákveðnar reglur um hvernig formannskjör eigi að fara fram og það er mjög mikilvægt að þær reglur séu virtar en ekki reynt að nýta glufu í regluverkinu til að steypa sitjandi formanni. Formaður verður að hafa skýrt umboð frá flokknum. Árni fékk þetta umboð þegar 3,474 flokksmenn greiddu honum atkvæði sitt í allsherjaratkvæðagreiðslu innan flokksins í ársbyrjun 2013. Í formannskjörinu á landsfundinum í gær tóku þátt 487 flokksmenn og Árni Páll vann sigur með eins atkvæðis mun. Setjum sem svo að þetta hefði farið á hinn veginn og Sigríður Ingibjörg hefði verið kosin formaður með 241 atkvæði. Í hvaða stöðu hefði það sett hana sem formann? Í hvaða stöðu hefði hún verið gagnvart öllum þeim flokksmönnum sem kusu Árna Pál í lýðræðislegri kosningu fyrir rúmum tveimur árum?"


Hér skrifar einn mikilhæfasti forystumaður jafnaðarmanna á síðustu árum og er ekki í vafa með orð sín: "Hvernig svo sem framboð Sigríðar Ingibjargar er tilkomið var það misráðið því það gat aldrei farið öðru vísi en illa eða annað tveggja - skilað löskuðum formanni eða formanni með mjög óljóst umboð."