Öflugt atvinnulíf er raunveruleg uppspretta verðmætanna. Sum framboð í kosningnum tala um allt að 50 - 75 milljarða auknum ríkisútgjöldum á ári. Útgjöld sem auðvitað verða ekki að veruleika nema ríkissjóður hækki tekjur sínar um samsvarandi upphæðir.
Ólafur Stephensen framkvæmdasjóri Félags atvinnurekenda skrifaði um þessi mál í Fréttablaðinu þann 19.10.sl. Ólafur segir í grein sinni þessi framboð séu ekki skýr í tali um hvernig eigi að hækka skatta til að ná meiri tekjum í ríkissjóð. Þegar framboðin segjast ekki ætla að hækka skatta á \"almenning\" heldur aðeins þá auðugustu og tekjuhæstu eru framboðin áreiðanlega að segja kjósendum ósatt.
Stjórnmálamenn eru ófeimnastir við að heita meiri útgjöldum en eru um leið fáorð um skattahækkanir á fyrirtæki til að fjármagna yfirdrifin kosningaloforð. Á endanum munu munu hækkanirnar ganga yfir öll fyrirtæki. Rétt eins og síðast þegar ákveðið var að hækka skatta í kjölfar efnhagshrunsins árið 2008.
Nú á að ganga að frambjóðendur og spyrja:
Hvernig á að fjármagna útgjöldin sem þeir lofa?
Hvað kosta þessi loforð fyrirtækið mitt?
Hvernig á að tryggja öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf?
Atvinnulíf sem stendur undir velferðinni til framtíðar.